NúrsÁ

í bleika húsinu

02.03.2009 23:00:43 / nursa

Lítið blogg

Við litla fjölskyldan fórum heim í Hrísey um helgina. Ég hef ekkert komið þangað síðan um jólin og það var dásamlegt að komast heim í Sólbakka til afa!!
Verst að Heimir þurfti endilega að veikjast á föstudagskvöldinu og var mishress/slappur alla helgina. Svo í gær hækkaði hitinn upp úr öllu valdi og eitlarnir fóru að bólgna... Læknirinn veit ekki alveg hvað er í gangi, en það kemur í ljós í vikunni ;)

Svo var ég að baka í kvöld og í eilífðar tiltektinni... Tengdó, Sigurpáll, Maren og Gvendur koma öll í mat annað kvöld þannig það er verið að undirbúa það. Aldrei að vita nema Árni færi manni kaffibolla í rúmið í fyrramálið líka.. Eeeen ég ætla nú samt að leyfa mér að efast um það :P

Við hittumst heil dúfrnar mínar, þar til næst

Bk.NúrsÁ ;* - Hríseyingur

» 2 hafa sagt sína skoðun

18.02.2009 22:46:44 / nursa

Svona er þetta í dag

 

Ég sit inni í stofu, leiðinlegt sjónvarpsefni og Árni að missa sig í símanum þannig ég ákvað að blogga!

Ég hef verið allt annað en dugleg við bloggið undanfarið, en það er eins og maður hafi núna minni tíma í það heldur en ég hafði fyrir ári síðan... Samt þarf ég ekkert að læra heima núna...

Lífið gengur svosem sinn vanagang. Ég er að vinna, Árni missti vinnuna en hefur nóg að gera í sveitinni og fer af og til í vinnutarnir á ýmsum vélum og tækjum. Heimir nýorðinn 2.ára og er mjög sáttur á leikskólanum hálfan daginn. Já, ekki hægt að segja annað en að lífið leiki við mann.

Við erum núna á fullu að leita að húsi til að byggja, blása á kreppuna og koma okkur fyrir. Þess vegna liggur Árni í símanum núna og undanfarin kvöld. Er að leita að grindum fyrir vélaskemmur ofl. Á meðan skoða ég teikningar, teikna upp sjálf og fer yfir pappíra sem þarf að fara yfir. Ekki laust við að spenningur sé í loftinu og tilhlökkunin að komast í sitt eigið húsnæði er gríðarleg! Enda erum við komin með nóg af flakkinu. Ég flutti austur janúar 2006 og fórum við í blokkina mars 2006. Fluttum í íbúð 207 við Skólaflöt 4 í ágúst 2006, þaðan fórum við (þá orðin þrjú) í mars 2007 og bjuggum yfir sumarið í kassa/töskum. Ég mestmegnis á Sölvabakka, Árni í Sveinungsvík og á Hríshóli (verknámsbæirnir). Svo í september 2007 flyt ég í Sóltún 5A og Árni er í Sveinungsvík. Ég tek restina af mínu dóti og skila Sóltúninu í lok júní 2008 og bleikahúsið tók við okkur í júlí 2008. Við höfum það reyndar  mjög gott hérna og megum mála og gera nokkurnvegin það sem við viljum. En þetta er samt ekki okkar og við finnum fyrir því.

Svona gengur þetta allt fyrir sig þessa dagana... Rifjaðist upp fyri mér, við að skrifa þennan texta, hversu gott það getur verið að blogga, svona fyrir sálarlífið ;)

 

Þar til næst rjúpurnar mínar,

Bk. NúrsÁ ;* - sem er algjörlega með  draumaeldhúsið í kollinum núna!!


» 1 hafa sagt sína skoðun

16.02.2009 13:24:27 / nursa

Afmæli í dag :D

Fyrir tveimur árum síðan var ég þreytt, illt og alsæl á Landsspítalanum! Allar þessar tilfiningar orsakaði piltur einn sem síðar meir fékk nafnið Heimir Sigurpáll og er hann Árnason! Já, fyrir tveimur árum fæddist litli strákurinn minn :D

það eru bara 12 ár í að hann fermist og 14 ár í að hann fari með foreldrum sínum á böllin. 15 ár í bílprófið, 16 ár í sjálfræðið og 18 ár í áfengið ;) (og þá líka fertugs afmæli mitt :P )

Já, svona líður tíminn... Svo er ég sjálf að fara einu árinu nær þrítugu... hahaha!

Heimir Sigurpáll Áslagusson verður 38 ára á morgun... þeir eru með dagana á hreinu nafnarnir :D

Bk. NúrsÁ ;* - mamma síðustu tvö árin!!


» 2 hafa sagt sína skoðun

30.01.2009 17:27:33 / nursa

ég fékk smá skammir fyrir að blogga sjaldan... þannig ég ákvað að bæta úr þessu og skrifa þetta hingað inn. Það hlýtur að vera nóg í bili ;)

Ég blogga kanski bara eftir helgina en okkur var boðið á þorrablót á Kópaskeri annað kvöld þannig það verður eitthvað að blogga um ;)

Hittumst heil, NúrsÁ ;*

» 0 hafa sagt sína skoðun

26.01.2009 13:01:12 / nursa

Biðin

Jæja, þá ákvað ég að blogga rétt á meðan ég held niðri í mér andanum... Sit inni í stofu með kveikt á sjónvarpinu sem er stilt á "mute" og kveikt á útpvarpinu (skemmtilegri tónlist í biðinni). Svo er bara að bíða, bíða, bíða og sjá þegar ríkistjórnin fellur!! Ég hef aldrei farið leynt með það að hvorki Samfylkingin né Sjálfstæðisflokkurinn séu í miklu áliti hjá mér, enda kaus ég hvorugan þann flokk og varð ekki sátt þegar þeir mynduðu meirihluta! Vægast sagt!
Þó hef ég ekkert ofsa vit á pólitík, fór fyrst að fylgjast með af einhverrri alvöru fyrir rúmum tveimur árum og kynnti mér þá málefni flokkanna. Fann flokk sem hafði áherslur að mínu skapi (þó ég sé ekki 100% sammála í öllu) og kaus hann.

Annað í fréttum er lítið. Ég hef verið að dunda í dauða tímanum (sem gafst á sunnudegi fyrir rúmri viku núna) við að teikna upp íbúð sem gæti hentað okkur. Svo er það bara heimilið og fjölskyldan, en nú styttist óðfluga í tveggja ára afmæli Heimis Sigurpáls III !

Við segjum þetta gott í bili, ég er alvarlega farin að í huga að henda mér í sturtu.. tek útvarpið með :P

Bk. NúrsÁ ;* - ofurspennta!

Bætt við; Um leið og ég vistaði þessa færslu kom Geir H. Haarde út af fundinum og tilkynnti um stjórnarslit. Nú er bara að  biðja og vona að eitthvað af viti gerist hérna!

» 0 hafa sagt sína skoðun

14.01.2009 10:58:59 / nursa

2009

 

Ég vil byrja á þ ví að óska lesendum gleðilegs nýs árs.

Er ekki hefðin að taka einhverskonar árspistil við þetta tækifæri?  Ég ætla alla vega að láta reyna á það!

 

Janúar; Eins og síðustu ár tók ég á móti nýja árinu í faðmi tengdafjölskyldunnar. Á nýarsdegi settum við Árni upp trúlofunarhringana í rólegheitunum og fengum við margar heillaóskir í kjölfarið.  Haldið var á Hvanneyri fljótlega, til þess að takast á við síðustu önnina í búfræðinni.  Ekki man ég eftir neinu fleiru merkilegu í mínu lífi í janúar, svo þessi mánuður fær ekki fleiri línur.

Febrúar; Það var haldið upp á eins árs afmæli sonarins og stuttu seinna héldum við Gunni upp á afmælin okkar. Ég fór ekki á nein þorrablót frekar en árið á undan, en ég keypti mér hákarl og át heima!

Mars;  Ég náði þeim áfanga að verða árinu eldri og í tilefni dagsins fórum við Heimir í Geirabakarí og fengum okkur súkkulaðisnúð.  Litli bróðir minn fermdist, þrátt fyrir að hann sé bara 10 ára! Ok. Hann er reyndar 14, en ég vil bara ekki trúa því.... Við Heimir keyrðum norður til þess að vera hjá afa í Hrísey um páskana, en við enduðum á því að taka bara afa með inn á akureyri og vera þar. Heimir litli veiktist svo norðurdvölin var ögn lengur en upphaflega var áætlað.

Aprí; Þá var farið að vora og styttast í próf. Heimir fór norður til pabba síns og ég hóf að einbeita mér að klára skólan.

Maí; Þá voru próf og sauðburður. En það var mjög gott og afslappandi að geta kíkt upp á Hest að skoða litlu lömbin og hjálpa til ef þurfti, á milli próflesturs. Ég tók síðasta prófið og í lok maí útskrifaðist ég sem búfræðingur frá Landbúnaðarháskóla Íslands. Eins og flest allir lesendur vita var ég mjög svo ánægð á Hvanneyri og leið þar vel, en allt tekur enda einhvertíman. Þannig ég flutti norður í sveitina.

Júní; Fyrsta dag júnímánaðar hóf ég störf hjá Norðurþing sem sundlaugarvörður  í sundlauginni á Raufarhöfn. Gekk starfið vel, og gengur enn, og er ég hæst ánægð þarna í íþróttamiðstöðinni.  Ég fékk svo að prófa að vera bóndi í einn dag þegar aðrir heimilismeðlimir brugðu sér af bæ og minns var einn heima :D Gekk það nú þrautarlaust fyrir sig, þó svo að ein kind hafi þurft aðstoð við burð.

Júlí; Þennan mánuð hóf ég á utanlandsreisu! (síðustu í bili, mér skilst að það sé kreppa) En ég keyrði til Reykjavíkur og hitti þar Rut og við keyrðum pínu meira og tókum Hákon upp í og við keyrðum aðeins meira og fórum á Kef-flugvöll! Þaðan fórum við á Kastrup og þaðan til Roskilde!! Yndislega, æðislega, guðdómlega, rosalega frábær hátíð!  Ég skemmti mér semsagt konunglega á Hróaskeldu og hefði stefnt að fara aftur 2009 (sem ég geri kanski með HSÁ eldri ef AC/DC koma ekki til Íslands!) ef þessi svokallaða kreppa væri ekki í gangi.

Ágúst; Við fluttum alveg í bleika húsið á Raufarhöfn og líður okkur mjög vel, nema þegar ég þarf að setja í þvottavélina... Heimir litli byrjaði í aðlögun í leikskólanum í lok ágúst því ég var að fara að vinna á morgnanna.

September; Ég byrjaði að vinna hjá Álfasteini (www.alfasteinn.is) og líkar mér vinnan þar mjög svo vel. Ég er að vinna þar frá 8-12 og var ég að mála, þrífa og brasa ýmislegt í verksmiðjuhúsunum en er í dag að föndra. Afi hélt upp á áttræðisafmælið þann 13.sept og fagnaði fjölskyldan með honum. Var það í fyrsta sinn sem að allir afkomendur afa koma saman!! En yfirleitt hefur vantað einhvern einn, oftast Heimi (sjómaður!). En núna voru öll börnin 5 (og ég trúi því að þau sem látin eru hafi verið með okkur líka), barnabörnin 9 og langafastrákurinn! Það voru ekki öll tengdabörn, en Árni lét þó sjá sig!

Október;  Guð það er svo stutt síðan október var, en samt man ég voða lítið eftir þeim mánuði. Hann fór aðaleg í það að vinna og sinna heimilinu og fjölskyldunni! 

Nóvember; Í nóvember fórum við Heimir Sigurpáll suður til pabba og fjölskyldu okkar þar. Það var dásamlegt að fá að vera hjá þeim í nokkra daga og leyfa Heimi að kynnast afa og ömmu í Reykjavík líka, ásamt öllum móðursystkinum sínum og fjölskyldunni allri! Við kallinn skelltum okkur á árshátíð Landbúnaðarháskóla Íslands og það var frábært að hitta alla krakkana! Maður var nú búinn að sakna svo marga dálítið mikið hérna á Raufinni.

Desember; Já jólamánuðurinn sjálfur! Hann fór í annað sinn á æfi minni (fyrir utan aldurinn 0-6 ára) EKKI í próflestur!! Í staðin bakaði maður tertur, smákökur og jólakökur í frítímanum. Málaði herbergi sonarins, þreif bleika húsið og dundaði við jólakortaskrif.  Við tókum á móti jólunum í Hrísey og nutum þess að vera heima hjá afa og Heimi frænda. Heimir litli hættir ekki að tala um „íss“ , „ava íss“ og „eimi ændi“.  Árni var bara í sveitinni eins og alltaf. Stoppaði ég allt of stutt í Hrísey, en vegna þess að ég slapp við prófalestur varð ég að vinna á milli jóla og nýárs, þannig ég kom heim á Raufinni 27.des og hélt hér upp á nýárið.

Ég minntist ekki mikið á þessa kreppu sem skall á á árinu, en ég prísa mig sæla hér á Raufarhöfn, því þótt borgarbarnið líti á staðinn sem krummaksuð, hef ég það gott í öruggri vinnu, lágu leiguverði og góða fjölskyldu ;)

 

Árið 2009 er nú runnið upp og vona ég að það fari vel með ykkur öll og að allir geti lifað sáttir.

 

Bk. NúrsÁ ;* - sem er allsæl með lífið og tilveruna ;D


» 2 hafa sagt sína skoðun

13.12.2008 11:12:51 / nursa

jólahjól

Stutt í jólin sem skýrir bloggleysi. Einfaldlega ekki tími aflögu í það...
Ætla þessvegna ekki að hafa þetta blogg lengra. Afi og Heimir eru að koma á eftir og í dag er laufabrauðsgerð í Vogsholti :D
Jólasveinarnir í Dimmuborgum búnir að vera í gangi nonstop í rúma viku núna ;)
Lífið er æði!

Bæjó!

bk.NúrsÁ ;*- í jólaskapi :D

» 1 hafa sagt sína skoðun

17.11.2008 12:12:19 / nursa

Ferðalag

Jæja, búin í einni vinnu í dag, mæti í hina fyri fjögur. Eftir vinnu er það keyrsla inn á Akureyri, gisting í Skuggagili, vakna snemma. Stressast upp, keyra út á flugvöll, fara í flug og vona og biðja til Guðs um að Heimir Sigurpáll verði ekki "leiðinlega" barnið í flugvélinni (þoli ekki krakka í flugi...). Lenda í Reykjavík um hálfeitt. Einhver fjölskyldumeðlimur mun taka á móti okkur, brunað upp í Flúðasel. Fengið sér snarl, svæfa Heimi (mun taka minnst 40.mín og kosta mikinn pirring og göngutúr um hverfið). Setjast í sófan með kaffibolla. Slappa af!!!

Kossar og knús til ykkar allra!

Bk.NúrsÁ ;* - sem ætlar að knúsa litlu bræðurnar í kremju á morgun!!!


» 2 hafa sagt sína skoðun

12.11.2008 22:42:53 / nursa

Frigg!

Úff, enginn tími fyrir svona bloggstand...
Lífið gengur sinn vanagang, er bara pínu á fulluferðinni þessa dagana. Ég er að vinna í Álfasteini og svo er langa vikan í íþróttahúsinu (mán-mið-föst-laug og sunnudagar!) og frítíminn fer í að undirbúa komu tveggja glæstra kvenna frá Akureyris á föstudaginn ;) En Didda og Helga ætla að kíkja í bleika húsið ;) Ég hlakka mikið til komu þeirra!

Svo þegar þær mæðgur yfirgefa okkur aftur á sunnudaginn, tekur við undirbúningur fyrir suðurferð!! Jebb, minns og Heimir erum að fara í pabba/afa fang og kúldrast með famelíunni! Við fljúgum á þriðjudegi og verðum því bíllaus þannig ég fer ekki í neinar heimsóknir. Ef þið viljið sjá mig þá verð ég í selinu ;)

Svo er árshátíðin á Hvanneyris þann 22. og mun Árni keyra suður 21.held ég og við mætum ofkors á árshátíð! Svo er það brun norður á sunnudegi og tvöfaldur vinnudagur á mánudegi! Veiiii!

Brjálað að gera næstu daga og vikur... En það er bara gott, enginn tími til að láta sér leiðast á meðan ;)

Á meðan ég man! Ég var að eignast gimbur!! Loksins! En hana fékk ég í útskriftargjöf frá tengdaforeldrunum! Hún fékk nafnið Frigg og faðir hennar heitir Bifur (Hvanneyringar átta sig á þessu) Hún stigaðist vel; ómv 28 f 2,5 l 4,5 og svo er frampartur 8,5 og læri 18 ;) og minns valdi hana sjálfur! Hún er skráð hvít, en er vitaskuld gul í hnakka og pínu gul í andliti. Snoppufríð og með gráleyt horn! Hún mun verða dekurdýr ;) Hennar eini galli, sem er samt bara pínulítill (þó með fyrirvara um að kannski verði þeir fleiri þegar tímar líða), er að hún er með Lekablóð í báðar ættir (aftur, Hvanneyringar fatta), en það er nú farið að þynnast enda frekar langt síðan kappinn sá krækti hornum ;)

 

Ðats itt!

Sendi kossa og knús á línuna

NúrsÁ ;* - fjárbóndi!! :D
ps. ég borgaði síðustu afborgunina á bílnum mínum þannig núna á Glitnir ekki neitt, bara ég!)


» 3 hafa sagt sína skoðun

03.11.2008 20:24:40 / nursa

Nóvemberblogg!!

 

Jæja, langt síðan síðast!

Ég ætla nú að byrja á því að þakka henni Drífu fyrir draumráðninguna! En það er rétt að þegar mig dreymdi mömmu með lökin þá var ég ófrísk af Heimi Sigurpáli og í skólanum á Hvanneyri.  Ég gæti vel trúað því að það hafi verið fyrir góðu því lífið lék (og leikur enn) við mann. Skólinn gekk vel, allt (nema meðgöngueitrunin og fæðingin) með Heimi gekk glimrandi vel og lífið bara mjög gott.

Ég er nú ekki komin af stað með annað barn... En ef svo væri myndi það vera gríðarlegt áfall fyrir mig, lækninn minn og fyrirtækið sem framleiðir „stafinn“, því þeir auglýsa hann sem 100% örugga getnaðarvörn...

Aftur á móti gengur vel í báðum vinnum og hef ég mikið gaman af því sem ég geri! Þannig það gæti átt við það ;)

Það er vonandi að hún mamma „gamla“ hafi bara komið til að láta vita að allt væri gott og yrði bara betra... Vona það allavega :D

Annars er lítið sem ekkert að frétta. Við Árni vorum að kaupa okkur nokkrar gimbrar úr Kollavík, og Heimir Sigurpáll var svo heppinn að fá eina í gjöf frá henni Boggu! En það stendur allt um það á síðunni hans.

Annars er lítið að frétta. Við Heimir Sigurpáll erum á suðurleið. Fljúgum þann 18.nóv og förum norður aftur 23.nóv. Maður verður nú aðeins að sjá framan í fjölskylduna! Og leyfa Heimi Sigurpáli að kynnast þeim ;)

 

Jæja, þá er komið ágætt í bili!

Við heyrumst gólftuskurnar mínar ;)

 

Bk.NúrsÁ ;* - sem brosir hringinn!


» 3 hafa sagt sína skoðun

26.10.2008 14:05:57 / nursa

Sæborg

Greinilegt að engnir draumráðningarmenn lesi þessa síður ;) 

En núna blogga ég um annað, aftur um eitthvað sem tengist Hrísey en er þó ekki eins umdeilt og bílamálin ;)

Í hópnum –Ég er Hríseyingur- á facebook, er komin af stað umræða um hvað skuli gera við Sæborg. Reyndar gríðarlega lítilfjörug umræða þar sem einungis tvær manneskjur hafa tjáð sig. Tel ég að það gæti verið vegna þess að fólk með skoðanir eru ekki eins virk þar eins og á blogginu. Þessvegna hef ég ákveðið að draga umræðuna hingað inn á þessa síðu mína.

Það er víst að nú hafi maður komið í eyjuna okkar (já, ég tel hana alveg eins mína eins og þeirra sem þar búa ennþá. Ef það væri hægt myndi ég vilja búa þar, en held að Hrísey beri ekki alveg þann kindastofn sem  okkur Árna dreymir um að koma upp ;D ) og var hann að skoða Sæborg með það í huga að breyta húsinu í sumarhús/íbúðir. Núna er það spurningin. Er það það sem Hríseyingar vilja? Enn eitt myrka húsið að vetri til, enn einn dimmi staðurinn á jólum. Enn eitt hálfgert draugahús? Eða myndi fólk vilja virkja Sæborg sem t.d menningarhús. Leikfélagið gæti haft þar æfingaaðstoðu, fundaraðstoðu ofl. Svo væri hægt að auglýsa Sæborg út sem sýningarsali fyrir listamenn, t.d lítt þekkta listamenn sem ekki fá að í „stóru frægu“ sölunum. Svo er Sæborg tilvalið undir allskyns námskeiðahald. Salurinn er vissulega ekki stór, en samt nægilega stór til þess að halda utan um allskyns litla atburði. Ótrúleg tilviljun, en þegar þessi umræða hófst á facebook, var ég nýbúin að hugsa til Sæborgar. En ég og frænka mín ein höfum verið að tala um að halda ættarmót heima í Hrísey, en amma hennar er Guðrún, systir Áslaugs afa og þessvegna verður ættarmótið auðvitað haldaið í eyjunni fögru. Þá var ég að hugsa um þetta og datt Sæborg í hug sem salurinn sem við gætum fengið leigðan. Væri það bæði útaf heppilegri stærð og svo sú skemmtilega saga að langamma okkar, Valgerður, bjó um tíma á efri hæðinni í Sæborg með elstu börnin tvö, Jörund og Guðrúnu (minnir mig að afi minn hafi einu sinni sagt).

Sæborg er hús með sögu og eigum við öll góðar minningar þaðan. Hvað segið þið um að sletta á það smá málingu og leyfa Sæborg að vera Sæborg, stað þar sem við getum hisst og átt góðar stundir?

 

Bk. NúrsÁ ;* - sem er vel til í að fá aðrar tillögur um hvað gera megi við þetta fagurgula hús ;)


» 2 hafa sagt sína skoðun

22.10.2008 22:32:39 / nursa

Mig dreymdi draum...

Já, síðustu nótt dreymdi mig mjög merkilegan draum sem ég hef ákveðið að deila hérna með ykkur. Kannski einhver sem skilur eitthvað í draumum og getur sagt mér hvað þetta merkir...

Ég man hann ekki í nákvæmum smáatriðum,  hefði þurft að vera með skrifblogg við rúmið og skrifa hann niður um leið og ég vakna :S

Eins og allir, að ég tel, vita sem þessa síðu lesa lést mamma mín, Anna Steinunn, fyrir rúmlega átta árum síðan. Lengi á eftir bað ég um að fá að dreyma hana, bara til þess að sjá hana aftur, heyra rödd hennar í draumi, einu sinni enn. Mig dreymdi hann ekki...

Það liðu nokkur ár, svona u.þ.b. 6 ár. Þá dreymdi mig þar sem ég gekk niður stigan heima í Sólbakka, afi var uppi og Heimir inni í stofu (afhverju eg vissi það, veit ég ekki). Ég fór út í garð og þar var mamma að hengja upp þvott, stór hvít lök eða rúmföt. Hún snéri sér aldrei við og sagði ekki orð. Þegar ég vaknaði var ég bæði undrandi og ánægð. Loksins fékk ég að sjá smá af henni, þó það hafi nú bara verið aftan á hana.

Svo síðustu nótt, þá var ég stödd í litlu eldhúsi, veit ekki hvar, kannaðist ekki við mig. Á móti mér sat mamma. Svo ljóslifandi! Hún sat ekki bara á móti mér, heldur talaði við mig. Það er þó nokkuð síðan ég var farin að halda að ég myndi ekki nákvæmlega hvernig rödd hennar hljómaði, en þarna heyrði ég hana tala með sinni djúpu, rólegu rödd. Ég man ekki hvað hún var að segja, og ég man ekki hverjir sátu til borðs með okkur. En það var annað fólk viðstatt. Þegar ég fann að ég var að vakna reyndi ég að treyna svefninn, fá að tala við hana aðeins lengur. En það var auðvitað ekki hægt og ég vaknaði við að önnur lítil manneskja kallaði á mömmu, mig.

Málið er bara það að ég skil ekki afhverju hún kemur núna. Afhverju allt í einu, upp úr þurru, birtist hún svona ljóslifandi fyrir mér. Síðustu daga hef ég átt erfitt með svefn og alltaf haft ónotartilfinginu, veit ekki afhverju, það er bara þannig.

Núna er ég bara smeyk. En afi Áslaugur er berdreyminn, og honum dreymir mömmu bara þegar eitthvað er ekki í lagi hjá mér. Það situr fast í mér þegar ég hringdi í hann um árið og sagði honum að það væri að leggja mig inn vegna meðgöngueitrunar, þá sagði hann "ég vissi að það var eitthvað að hjá þér. Mig dreymdi mömmu þína í nótt".  Ég er búin að hugsa um þetta í allan dag og er satt best að segja skíthrædd um að núna sé eitthvað að. Ég veit bara ekki hvað eða hjá hverjum ætti eitthvað að vera að.... Ég er kannski bara pínulítið geðveik ;) en það er bara þannig.

Ef einhver getur botnað eitthvað í þessu má sá hinn sami endilega láta mig vita!

Kossar og knús úr bleika húsinu

Bk.NúrsÁ ;*


» 4 hafa sagt sína skoðun

21.10.2008 22:43:40 / nursa

Blogg var það heillin

Blogg já. kominn tími á eitthvað nýtt :)

Það er helst frá því að segja að hér á Raufinni stendur nú yfir menningarvika! Þetta var sett með pompi og prakt á sunnudaginn, en ég var að vinna þannig ég missti af því öllu saman.
Í gær var svo félagsvist. Við Heimir Sigurpáll kíktum aðeins á það eftir vinnu hjá mér. Í kvöld var svo Skrínukostur. En þá koma allir með kvöldmatinn sinn út í félagsheimili og borða þar saman :D Svo var hver gata með skemmtiatriði og var þetta bara snilld!! Ég set myndir inn á fésbókina og mittplássið.

Svo er rífandi dagskrá á hverju kvöldi út vikuna, ég hef nú ekki mikinn áhuga á næstu kvöldum, en á laugardagskvöldinu er villibráðahlaðborð á hótelin og dansleikur á eftir. Heimir Sigurpáll gistir í sveitinni og við Árni förum hlaðborðið :D

Annars gengur lífið bara sinn vanagang. Allir að vinna (enda mjólkurvörur að fara að hækka, spurning um að láta verða að því að fá kvígu í Sveinungsvík :P ) og sinna sínum daglegustörfum.  Heimir Sigurpáll stækkar, ég líka (þó það sé algjörlega og eingöngu á hinnveginn!) og Árni minnkar (en það virðist sama hvað hann lætur ofan í sig, bætist ekki á hann gramm! Ef maður lítur á björtuhliðarnar, þá tóri ég ábyggilega lengur á varabirgðunum ef kreppan versnar, heldur en hann ;P )

Jebb, seim óld seim óld í bleika húsinu.

Kossar og knús á liðið!

Bk. NúrsÁ ;* - sem er gríðarlega þreytt eftir að hafa leikið hendurnar á Jónasi Friðrik í Aðalbrautaratriðinu!!!

» 1 hafa sagt sína skoðun

12.10.2008 22:43:57 / nursa

Hrísey, farin til fjandans?

Jæja, núna verð ég bara að tjá mig aðeins.

Ég fór í Hrísey núna á föstudaginn. Hef ekki farið lengi og ákvað því að fara þó það væri stutt stopp. Ég hefði betur átt að sleppa því. Ég hef sjaldan orðið fyrir jafn miklum vonbrigðum.

Það hefur alltaf verið aðeins um bíla í Hrísey, og þá yfirleitt hjá fólki sem hefur í fúlustu alvöru þurft á því að halda. Fólk sem vinnur hinu meginn á eyjunni þarf bíl í vinnuna. Fólk sem vinnur með tæki sem þarf að flytja á milli staða, það þarf bíl. Fólk sem einhverra hluta vegna getur ekki gengið almennilega, það þarf bíl. Sumir sem þurfa ekkert bíl er með traktor, en notar hann samt ekkert endilega við hvert tækifæri.

 

Ég steig í land í Hrísey. Datt í hug að leifa Heimi að labba heim til afa. Mér snérist hugur eftir u.þ.b. 30 sek. En þá fór flest allt fólkið upp í bílana sína og keyrði af stað heim.  Umferðin var svo mikil þarna niðri á bryggju að mér stóð ekki á sama og setti drenginn í kerruna sína og labbaði þannig heim í Sólbakka.

Það lítur út fyrir að gríðarlegur fjöldi í Hrísey finnist gríðarleg þörf á því að keyra hvert sem það fer. Ein manneskja þarf að keyra sig heim til sín, þó hún hafi ekki verslað neitt og þurfi ekkert að bera. Þó hún þurfi ekki að draga að sér andan af fersku lofti í nema sirka 5 mín. Þá er keyrt. Sumir dragnast með 6 bónuspoka, 3 börn og einn kassa úr rúmfó í bílinn. Setjast svo upp í, helst með yngsta barnið í fanginu frammí, og keyra á 50 km. Hraða heim til sín.

Fólk er orðið gríðarlega latt.

„Það eru sjálfsögð mannréttindi að hafa bíl í Hrísey“, var mér sagt. Jájá, það má svosem hver sem er vera með bíl og vera latur með feitan rass mín vegna, en væri samt ekki í lagi að fara eftir umferðarrelgum. Í það minnsta!

A.      Bílbelti eru ekki til að sýnast, notaðu þau í Hrísey alveg eins og þú gerir í landi

B.      Myndir þú virkilega sitja með krakkan þinn í fanginu á leið inn á Akureyri? Nei, hélt ekki, hafðu viðeigandi öryggisbúnað í bílnum!

C.      Hefurðu aldrei tekið eftir skilti sem á stendur 30! Það þýðir, bara svo þú vitir það, að hámarkshraðinn í þorpinu er 30.

D.      Bíllinn þarf skoðun þó hann sé í Hrísey

E.       Hefur þú séð bílastæði í Hrísey? Er pláss fyrir 10 bíla fyrir framan búðina?

F.       Er bílastæði við kirkjuna?

G.     Er þér alveg sama hvar þú leggur?

Þar sem bílaumferð er orðin svo mikil, legg ég til að lagðar verði gangstéttir og gangbrautir í Hrísey. Ég þori ekki að láta tæplega tveggja ára gamlan son minn labba á götunum.

Það er bara tímaspursmál hvenær á sér stað stórslys í Hrísey. Þegar það gerist vona ég að fólk fari aðeins að hugsa málin.

Ef þú þarft bíl vegna vinnunar, notaðu hann þá í vinnunni (og þegar þú ert með mikinn farangur í ferjuna), þú þarft ekki að keyra hvert sem er bara vegna þess að þú getur það.

Ef þú telur þig þurfa bíl vegna þess að fjölskyldan er stór og þessvegna mikið bras að komast í og úr ferju með farangur að auki,  þá ok. Fínt, keyrðu niður á bryggju með börnin þín í bílstólum, á sessum, í belti. Farðu sjálf/ur í belti og keyrðu á löglegum hraða.

Ef þú ert bara svona djöfulli latur, þá í minnsta kosti, farðu eftir umferðarreglunum! Og hugsaðu þig svo tvisvar um næst þegar þú keyrir í nýju sundlaugina til þess að fara í sund og hreyfa þig.

Mér finnst þetta skömm. Mér hefur aldrei dottið í hug að fara með bíl í Hrísey. Ekki á meðan ég bjó þar, og alls ekki núna þegar ég er „farfugl“. Jú, ég hef þau forréttindi að afi á traktor. En hugsið aðeins málið. Hafið þið séð afa eða Heimi koma í hvert skipti sem ég kem heim, á traktor niður á bryggju? Held nefninlega ekki. Það heyrir til undantekninga.

Hér á Raufarhöfn labba ég í leikskólan, labba í búðina og stundum í vinnuna. Er reyndar alltof löt við það, og ég viðurkenni það fúslega. En ég nota samt yfirleitt fæturnar frekar en olíuna. Og takið eftir einu, Raufarhöfn er mun dreifðari byggð og stærra þorp heldur en Hrísey...

Ég segi það enn og aftur, mér finnst þetta skömm og gríðarleg afturför í Hrísey.

Bk. NúrsÁ ;* - sem er í augnablikinu stoltari sem Raufsi en Hríseyingur.


» 15 hafa sagt sína skoðun

09.10.2008 21:55:10 / nursa

Ó ljúfa líf...

Kreppa! Kreppa!

Maður heyrir orðið ekki neitt annað. Sem betur fer finn ég nánast ekkert fyrir þessum faraldri sem er er að tröllríða þjóðinni. Þegar ég keypti Skoda þá yfirtók ég lán sem hefur hækkað um 5000 krónur síðan ósköpin byrjuðu, mjög gott lán það. Jú, verðið hefur hækkað í búðunum, en þá bara kaupir maður minna af því sem óþarfi er og skoðar betur verðmiða. 

Ég öfunda ekki þá sem eiga hús, bíl og annað á lánum. En ég get ekki að því gert að hía pínu á það lið sem keypti sér 5 ára gömul  hús (þá með 5 ára gömlum eldhúsinnréttingum, gólfefnum og slíku), reif allt niður og gerði nýtt... Svona fólk sem var að bruðla með óþarfa... Ég get heldur ekki að því gert að ég glotti út í annað þegar mér verður hugsað til þeirra sem höfðu milljónirnar í mánaðarlaun. Hí á þá, þeir þurfa nú að lifa eins og við hin! Vond manneskja, ég veit. En finnst engum öðrum pínu gott á kallana sem skeindu sér með 5000 köllum, að þurfa að versla á útsölum, eiga bara 2 bíla í staðinn fyrir 5, að geta ekki skipt um parket og loftljós fyrir önnur hver jól... Að þurfa að lifa eins og við hin, sem erum bara ósköp venjulegt fólk í venjulegu húsnæðum, á sæmilegum bílum og málum í mesta lagi á nokkurra ára fresti (sem er mun ódýrara en að rífa allt niður og byggja upp á nýtt)?

 

Ég hugsa að ég og mín kynslóð höfum hreinlega gott af þessu! Við höfum of oft fengið hlutina upp í hendurnar. Mismikið þó. Sumir fá allt frá mömmu og pabba og hafa aldrei þurft að spá í peningana sína. Aðrir hafa fengið eitthvað hjá mömmu og pabba, en keypt bílinn sinn sjálfir og fötin utan á sig. Þetta er mjög misjafnt. Ég fékk alltaf allt upp í hendurnar þegar mamma var á lífi. Það breyttist eftir fráfall hennar en ég hafði það samt mjög gott.  Þegar ég var 18 ára fór ég að hugsa um mig algjörlega sjálf og ég held að ég geti stolt sagt að ég hafi ekki beðið pabba minn um mikið fyrir mig síðan þá. Enn Heimir frændi hefur aftur hjálpað mér tvisvar sinnum, árið sem ég var 18.

Þeir sem fengu allt upp í hendurnar þurfa nú hugsanlega að sætta sig við það að ekki allar gallabuxurnar eru dísel, ekki öll föt merkjavara. Að nýja íbúðin sem pabbi/mamma borgaði 70% í, verður með húsgögnum úr Rúmfó...  Æi greeeeeyyyyyin!

 

Ó enn sú sæla að hafa aldrei átt neitt annað en Rúmfó dót/drasl :D

Ó sú sæla að hafa alltaf verið verkakona á verkakonu kaupi!

Ó sú sæla að hafa aldrei kynnst gnægtar lífið bankastjórans!

 

Ó hvað það er gott að vera til í „kreppunni“!

 

Bk. NúrsÁ ;* - sem ætlar að sofa í Hrísey næstu nótt!


» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 15
Klukkan
Dagsetning
28. janúar 2012
Heimsóknir
Í dag:  13  Alls: 97001
Leitarbox

Könnun

Engin könnun í gangi, athugaðu aftur seinna.
Myspace æðið
gamli góði skólinn minn
Hríseyin mín