NúrsÁ

í bleika húsinu

30.10.2006 20:24:41 / nursa

Mikið að gera...

Jæja, það verður ekkert blogg í bili... Það er allt kreisí að gera!!!

» 2 hafa sagt sína skoðun

27.10.2006 20:08:40 / nursa

Þá er það meiri lesning

Jæja gott fólk. Kominn tími á að segja frá síðustu dögum. Eins og þið vitið vorum við Árni í fjósi í vikunni og var það bara gaman. Ég sá kýr bera og er það í fyrsta sinn sem ég sé kálf fæðast. Það var heldur enginn smá kálfur! Það þurfti að hjálpa kúnni þó þetta sé hennar þriðji burður (þetta á víst að vera auðveldara með hverjum kálfi) og hún bara gat þetta ekki! Þá fór Sindri (fjósamaður) og hjálpaði henni. Enda fæddist þessi líka stóri boli og sögðu fjósamenn að þetta væri gríðarlega stórt kvikindi. Snorri sagði að þetta væri góð sparnaðarleið, að láta kálfana bara fæðast mánaðargamla.. Ekki slæm hugmynd ;)

Síðan var fimmtudagur í gær... Þetta var samt aðeins öðruvísi fimmtudagur því það var engin pizzaveisla... Ég og Árni fórum á foreldranámskeið kl fimm og svo fór hann með Rut á skotleyfisnámskeið um sex. Ég kom heim um sjö leitið og þá fór ég yfir til Binna. Ég, Binni, Gunni og Maggi bóndi elduðum okkur skíthoppara og franskar með. Mmmm, bara gott. Síðan komu Kjartan, Bjarni Árdal og Jóna og þá var haldið á barinn. Það var kraríókí á barnum. Það var bara gaman! Árni og Rut komu upp úr hálf ellefu og einmitt þá fór fjörið að byrja og Bjarni Arnar steig fyrstur á stokk! Síðan fylgdu margir snillingar á eftir hver öðrum betri... og kannski aðeins á hinn vegin líka :S Síðan kom hlé á meðan dómnefndin var að ákveða sig. Ég keypti mér kókglas og settist hjá Ragnhildi og Nonna, bara hress. Þá stormaði kærastinn minn inn, fór á hnéin.... og drapst í kjöltunni á mér.....! Hmm... Spurning um að kunna sér hóf! Þá hófst ævintýri mitt að koma honum heim. Hafði samt rúmið útaf fyrir mig hluta nætur þar sem hann neitaði að yfirgefa klósettgólfið. Síðan hélt hann að ég myndi vorkenna sér í dag þegar þynnkan bankaði uppá... Huh... Bjartsýnn! Getur sjálfur sér um kennt greyið. Færði honum samt að drekka og svona svo ég væri ekki algjör gribba. Síðan yfirgaf hann mig í dag til þess að fara á námskeiðið og ég er búin að vera að skemmta mér að þrífa ruslaskápinn og klósettið í kvöld. Er síðan að fara yfir til Gunnhildar og Dagbjartar í mat. Dagbjört litla var að banka upp á og bjóða mér (5 ára gömul dóttir Gunnhildar). J Síðan held ég að ég kíki aftur á barinn í kvöld því Árni var að mana mig í pílukast....!!

Allavega, við heyrumst seinna ;*

NúrsÁ síhressa!! =Þ


» 10 hafa sagt sína skoðun

25.10.2006 10:38:03 / nursa

Fjósið

Jæja, þá er annar dagurinn í fjósi að verða hálfnaður! Maður er ekkert smá duglegur ;)

Í gær var fyrsti fjósadagurinn okkar Árna og við mættum galvösk í fjósið og fórum að mjólka, þetta var í fyrsta skiptið sem undirituð mjólkar! Það tókst sérstaklega vel held ég nú bara, alla vega var ekkert sagt við okkur slæmt :D Við þurfum að mæta 4 sinnum á sólahring og ég verð nú bara að segja það að ég er ennþá á því að beljur séu ekki mitt "thing". Ætla samt að eiga eina til þess að spara pening!

Jæja,ég verð að hætta, Jóna er að tala!!


» 5 hafa sagt sína skoðun

23.10.2006 19:22:06 / nursa

Mánudagur til mæðu...

Jæja, komin ný vika og allt að gerast! Á morgun byrja vaktirnar okkar Árna í fjósi.. Jibbý... :S

Síðan á að fara á kjúklingabú í Mosó á morgun og á KFC á eftir, ef menn hafa lyst! Í dag var bara svona venjulegur mánudagur, byrjað á búvélafræði og síðan var efnafræði í staðin fyrir nytjajurtir og dagurinn endaði á málmsuðu :) Eftir málmsuðu fórum við Árni upp í hesthús að kíkja á fólkið. Það var bara gaman.

Jæja, Árni búinn að elda þannig þetta verður ekki lengra, bæjó

NúrsÁ ;*


» 2 hafa sagt sína skoðun

21.10.2006 09:32:18 / nursa

6464

þegar ég kom inn á síðuna áðan var ég nr 6464... Nokkuð magnað!

Það var geggjað á fimmtudagskvöldinu!! Það var pizza hjá Binna og svo var spilað... Eins og alltaf... Síðan var skundað á barinn og ég held að það hafi ALLIR verð gjörsamlega hauslausir nema ég og Kjartan!! Ég fór nú heim um eitt og Árni staulaðist með en hinir fóru í partý heima hjá Valþóri og mér skilst að íbúðin eigi aldrei eftir að bíða þess bætur... :S hmm... Síðan fóru eiginlega allir heim í gær nema við, Binni, Kjartan, Maggi og Kristín. Við fórum öll á barinn nema Kristín því hún var svo þreytt. Það var svaðalegt fyllerí aftur í kvöld, nema við Kjartan alltaf svo stillt ;) En við Árni fórum um þrjú leitið heim því við erum að fara í Dalina á eftir því Árni er með rúlluvélina á vélasýningu þar í dag, og svo eru hrútasýningar þar líka þannig maður hittir einhvern sem maður þekkir :D

Alla vega, þá verður þetta morgunblogg ekki lengra í bili, hittumst heil

NúrsÁ morgunglaða ;*


» 1 hafa sagt sína skoðun

19.10.2006 13:34:11 / nursa

Bara gaman :D

Í gærkvöldi hélt ég að ég myndi deyja mér leiddist svo! :$

Það var ekkert skemmtilegt í sjónvarpinu og ég búin að læra allt heima... Árni sat bara í tölvunni að leika sér (hann er orðinn háður tetrix) og ég lá uppi í sófa. Þá hringdi bakarinn og bjargaði kvöldinu!! Hann, Binni og Gunni kíktu til okkar og stefan var tekin að horfa á Rauðhettu! Árni og Gunni reyndar misstu sig yfir haugsugum og rúlluvélum á netinu á meðan við hin horfðum á myndina... :S Síðan kom Ragnhildur og þá var náð í Gunnhildi yfir og farið að spila party&co. Liðin voru strákar á móti stelpum og leikarnir byrjuðu nú ekki vel.... Þegar strákarnir áttu bara eftir að fá einn disk vorum við stelpurnar bara með einn! En þá tókum við okkur líka á og fórum á kostum!! Allt í einu urðum við snilldar leikarar, listmálarar með meiru, gáfaðar og hugmyndaríkar! T.d þá lentum við á bannorði og ég tók spjald... Ég vissi ekki hver manneskjan á spjaldinu var en á einhvern undarlegan hátt tókst Gunnhildi að ég var að tala um Zsa Zsa Go...eitthvað!! Hehehe, nokkuð góðar. Spilið endaði líka þannig að víð tókum strák greyin í neeeeefið! 8) Eftir spilið voru sumir æstir í að taka annan hring en vegna þess að klukkan var orðin hálf tvö og skóli morguninn eftir var því frestað þar til í kvöld. Í kvöld er líka vikulega pizzan heima hjá Binna. Þá hittumst við nokkur úr bekknum og allir koma með eitthvað í pizzuveislu og Árni bakar. Í kvöld á ég líka að koma með eftirréttinn... Síðan er stefnan tekin á barinn eins og alltaf á fimmtudögum ;) Geggjað gaman á Hvanneyri =D

Við hittumst heil gott fólk

NúrsÁ hin gáfaða...


» 4 hafa sagt sína skoðun

17.10.2006 10:39:48 / nursa

Úff

Jæja, kominn tími á lítið blogg. Ég er að byrja í bókfærslu þannig það verður ekkert langt í þetta sinn...

Fór heim í Hrísey um síðustu helgi... Ohh hvað það var gott að gera bara nákvæmlega ekki neitt. Bakaði reyndar jólakökur og svona handa afa en annars lá ég bara í leti. Gott að slappa aðeins af. Svo kom maður aftur hingað og allt brjálað. Það þarf að læra og læra og læra, síðan þarf líka auðvitað að sinna félagslífinu ;Þ Það er nauðsyn!!

Jæja, get ekki haft það lengra í bili, tími að byrja.

NúrsÁ


» 2 hafa sagt sína skoðun

10.10.2006 12:34:11 / nursa

Ég þekki bónda...

Jæja jæja gott fólk! Kominn tími á blogg kannski?

Ég nenni nú eiginlega ekki að fara yfir allar síðustu vikur. Höfum það stutt; Arnastaðir, Hvanneyri, einkunnir, barinn, pizza, Party&co, björn, ópal, læra, gaman! Þá er það komið.

Mig langar mest að segja frá helginni sem leið. Pabbi minn og sambýliskona hans hún Hulda gengu í það heilaga eftir langa og stranga bið!! Þegar ég og Dísa systir vorum litar vildum við alltaf vera brúðarmeyjar... En þau biðu með þetta þar til við urðum of stórar... Þeim er næstum því fyrirgefið það ! Athöfnin var glæsileg og Thelma (konan hans Gunnzó brósa) hló svolítið að mér af því ég táraðist á milljón!! Dísa systir söng og var nú bara nokkuð góð ;Þ

Veislan heppnaðist mjög vel, maturinn var geggjaður og allir skemmtu sér vel. Gestur litli sagði eina sögu af sér þega hann fór upp á þak með pabba í skriðdrekanum (eitthvað dót sem leit út eins og skriðdreki...). Það var ekkert smá krúttlegt! Ég stelst kannski til þess að setja inn eina tvær myndir af þessunm stórviðburði hérna til hliðar ;)

 

 



Annað í fréttum er að við fórum í sónar í gær. Þá kom í ljós að litla barnið okkar á bara alls ekkert að fæðast 4.mars heldur 27.febrúar.. Sjáum  hvort eitthvað af þessu standist J

En ég er að drífa mig i tíma núna, við hittumst heil...

NúrsÁ ;*


» 9 hafa sagt sína skoðun

05.10.2006 12:27:45 / nursa

Tékkið á þessu!!

Ef þið hafið ekki séð þetta þá kíkið núna ;)

http://www.b2.is/?sida=tengill&id=177964

Mæli með því ;Þ

NúrsÁ...


» 2 hafa sagt sína skoðun

05.10.2006 08:13:03 / nursa

Smá svona

Vill bara benda fólki á skoðannakönnun hér til hliðar. Svo eru breyttir tenglar eitthvað... Endilega nýtið gestabókina líka ;*

NúrsÁ, í bókhaldi...


» 0 hafa sagt sína skoðun

03.10.2006 10:32:12 / nursa

...

Sorry allir, ekkert hérna ég veit... En um leið og ég hef einhverjar mín. til þess að gera ekki neitt þá skal ég blogga... Það er bara alltof mikið að gera hérna hjá manni :S En ég læt heyra í mér fljótt ;*

NúrsÁ upptekna...


» 2 hafa sagt sína skoðun


Klukkan
Dagsetning
13. mars 2010
Heimsóknir
Í dag:  37  Alls: 68353
Leitarbox

Könnun

Engin könnun í gangi, athugaðu aftur seinna.
Myspace æðið
gamli góði skólinn minn
Hríseyin mín