NúrsÁ

í bleika húsinu

25.02.2008 20:17:40 / nursa

oggósmá

Sælt veri fólkið!
Gaman að sjá hvað fólk er virkt hérna á síðunni :P
En allavega, þá hef eg ekki mikinn tíma í blogg... bara að læra og læra og svo læra aðeins meir! En ég vildi líka benda á að Heimir Sigurpáll er kominn með nýja síðu hja 123.is, en mér fellur einhverra hluta vegna ekki vel við barnaland... Allavega þá er slóðin einföld og lykilorðið ætti hver sem er sem þekkir okkur að fatta ;)
Bk.
NúrsÁ ;* - sem heldur áfram að læra

» 5 hafa sagt sína skoðun

19.02.2008 10:07:41 / nursa

Smá pæling

Jæja góðu NúrsU aðdáendur 8)
Ég var að spá í einu. Núna hefur blog.central.is verið breytt í blogcentral.is . Gríðarlegar nafnabreytingar í gangi hérna! ;)
Núh, allavega, þá eru sumir ósáttir með þessa breytingu og margir sem ekki komast inn á síðuna sína og fleira í þeim dúr. Mér er svosem sama um þessa breytingu, en finnst illa komið að henni að hálfu blog.central/blogcentral. Hef verið að velta þeim möguleika fyrir mér að fara yfir á bloggar.is . Endilega segið mér ykkar skoðun á þessu öllu saman! Bara í kommentin takk!

Bk.
NúrsÁ ;* - superblogger

» 3 hafa sagt sína skoðun

16.02.2008 10:20:48 / nursa

afmæli

Ótrúlegt en satt. Sonur minn er eins árs í dag!!!
Er það virkilega komið ár síðan ég lá inni í Landsspítala :O
þetta er ótrúlega fljótt að líða!!

Er aðeins að sjokkera mig yfir þessu... verð samt að halda áfram að brasa, er að búa til salöt... við sjáumst einhver í dag, sum á morgun og önnur seinna ;)

Bk.
NúrsÁ ;* -  sem er búin að vera mamma í heilt ár!!

» 5 hafa sagt sína skoðun

15.02.2008 23:38:44 / nursa

albúm

Jæja, þá er komið eitt albúm inn og eru það myndir frá öskudeginum hérna á Hvanneyri. Aðalega samt bara ég og Rut að fíflast og nokkrar af H.S.
Svo set ég inn einhverjar myndir í dauða tímanum... sem er ansi lítið af þessa dagana.
Á morgun verður svo Heimir Sigurpáll eins árs... ótrúlegt en satt! Ár liðið síðan hann hafði það í gegn að fæðast þessi elska... Hríseyinga/Hvanneyringa mini afmæli á morgun ;) svo koma einhverjir ættingjar á sunnudaginn. Vei, mér finnst svo gaman að fá fólk í kaffi!!

Bk.
NúrsÁ ;* sem á helling af kökum á gúmellaði ;)

» 0 hafa sagt sína skoðun

14.02.2008 11:24:30 / nursa

könnun

vek athygli þína á könnun hér til hliðar. Þitt atkvæði skiptir máli :P

NúrsÁ ;*

» 0 hafa sagt sína skoðun

13.02.2008 23:58:39 / nursa

Bara smá

jæja, held að það sé kominn tími á smá lagfæringar hér.
Veit að ég er ekkert að standa mig í blogginu,  en ég er auðvitað á fullu í skólanum, með Heimi Sigurpál og heimilið, svo verður sá stutti eins árs á laugardaginn og auðvitað bauð ég fleirum en í upphafi var áætlað :S hlakka samt mikið til, Hríseyingarnir koma á laugardaginn (þá þau sem búa í bænum) og hlakka ég mikið til að hitta þau ;)

Annars var ég búin að lofa pistli úr Dk ferðinni, og hann kemur... bara veit ekki hvenær :S

Annars allt gott að frétta bara. Alltaf gaman á eyrinni og er manni bara farið að kvíða fyrir að klára í vor :S
svoneretta...

Allavega, þangað til næst
hittumst heil,
Kv.NúrsÁ ;*

» 0 hafa sagt sína skoðun


Klukkan
Dagsetning
22. mars 2010
Heimsóknir
Í dag:  4  Alls: 68608
Leitarbox

Könnun

Engin könnun í gangi, athugaðu aftur seinna.
Myspace æðið
gamli góði skólinn minn
Hríseyin mín